|
Í dag var ákveðið að kíkja við á Efri - Rauðalæk og taka smá úttekt á hryssunum Dalvör frá Hrappsstöðum og Hreyfingu frá Tjaldhólum. Þar eru þær í tamningu hjá Sigursteini Sumarliðasyni. Þær litu mjög vel út en Dalvör sem sjá má á myndinni hér til hliðar lofar mjög góðu en hún er einungis tveggja mánaða taminn.
|
|
Nánar...
|
Nú er búið að taka frekar langan tíma að reyna að koma síðunni í gang en þetta mjakast þó allt í áttina. Jólin og allt sem þeim fylgir er nú loks yfirstaðið og nýtt ár gengið í garð. Þá er loksins kominn regla á hið daglega líf og má vænta mikilla úrbóta í síðugerðinni. Mikið hefur verið að gera í hestunum og er búið að taka nokkur hross á hús jafnt taminn sem og ótaminn. Kindurnar hafa það ekki sem verst og er bara að vona að flest allt sem sett var á skili ávöxt sínum í vor. Hjúin Hringur og Týra sem sjá má hér á myndinni hafa það gott og er aðeins farið að kenna þeim, þá sérstaklega Hring hvernig fara á að í smalamennskunni og lofar hann mjög góðu. |
|
Skrifað af: Administrator
|
|
Miðvikudagur, 02. Desember 2009 12:47 |
|
Erum búin að setja upp nýja heimasíðu. Hún er vitaskuld ennþá í vinnslu en verður tilbúin sem allra fyrst!
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 07. Desember 2009 16:03 |
Nýlega bættist við nýr fjölskyldumeðlimur en það er hún Týra litla. Týra kemur frá Brekkukoti. Týra er mikill frekjudós og lætur hún Hring ekkert ráðskast með sig að óþörfu. Þau eru þó mestu mátar og leika sér stöðugt allan daginn. Annars er það helst að frétta að verið er að reyna að koma upp almennilegri heimasíðu en vonandi verður það búið sem allra fyrst. Féð er komið í byggð og nú fer brátt að líða að því að bæði kindur og hestar verði tekinn aftur á hús. |
|
Þriðjudagur, 13. Október 2009 21:06 |
|
Verið velkominn á heimasíðu Tjaldhóla.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 28. Október 2009 17:08 |