Forsíða
Sauðburður og Eldgos Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Seinustu dagar hafa verið annasamir enda hefur sauðburður verið í hámarki. Sauðburðurinn hefur gengið framar björtustu vonum og hafa mörg falleg lömb bæst í hópinn. Það er því nokkuð víst að það verður erfitt að velja ásetningsgimbrar í haust. Þá eru allar ær bornar nema tvær. Hestarnir hafa verið í smá fríi þessa daganna og hafa þeir notið blíðurnar úti við.
Nánar...
 
Sauðburður Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Í dag þann 25.apríl hófst sauðburður við mikinn fögnuð. En það var hún Sæla sem bar sínu fyrsta lambi og var það grábotnótt gimbur. Allt gekk að óskum en þó þurfti hún örlitla hjálp enda var lambið vel stórt. Þá hefur eigandinn Guðni Steinarr Guðjónsson gefið gimbrinni nafnið Drottning.
Nánar...
 
Ný Söluhross Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Í gær var tekinn smá úttekt á þeim hrossum sem eru á húsi hér á Tjaldhólum. Það gekk allt samkvæmt óskum og var gaman að sjá að allt er þetta í rétta átt. Vorum að henda inn nýjum söluhrossum. Þeim Hyllingu og Alsýn sem má sjá hér á myndinni með sjálfan Eyjafjallajökul í baksýn.
Nánar...
 
Eldgos í Eyjafjallajökli Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að undanfarnar vikur hefur staðið yfir Eldgos í Eyjafjallajökli. Myndin hér til vinstri var tekinn þegar að strókurinn var hvað mestur og er þessi mynd tekin af bæjartúninu. Fjölmiðlafárið hefur verið gífurlegt og vart þverfóta fyrir jafnt erlendum sem innlendum fréttamönnum. Var bóndinn á bænum meira segja dregin í viðtal hjá sænskum fréttamönnum þegar hann var í reiðtúr. Var hann dregin upp á hólinn hér fyrir ofan svo þeir gætu tekið myndir af honum með sjálfan Eyjafjallajökul í baksýn.



Myndin er tekin af Ragnari Rafael Guðjónssyni 10 ára
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 3

Gestir

Það eru 2 gestir á síðunni núna

Tjaldhólar

We are interested in getting foreign partners
in co - operation in breeding.
If you are interested contact us.
Telefon: 00354 - 4878600
Email: tjaldholar@gmail.com 

Mares for rent

We have two first prize mares for Rent.
Framsýn from Tjaldhólar
and Stör from Unalæk
Email:
tjaldholar@gmail.com







hugsyn.jpg