Á Tjaldhólum búa þau Guðjón Steinarsson hrossaræktandi og húsasmíðameistari , Særún Steinunn Bragadóttir hársnyrtir ásamt börnum sínum þeim Sjöfn Dagmar, Ragnari Rafael og Guðna Steinarri. Þau hafa búið á Tjaldhólum frá árinu 2000 en fyrir áttu þau heima á Hvolsvelli.
Einungis átta ára gamall eignaðist Guðjón sínu fyrstu hryssu en hún hét Stjarna frá Árnagerði og var undan Jörp frá Teigi og Blesa frá Árnagerði. Guðjón tamdi hana og fékk hann undan henni tvær hryssur þær Snerru og Þokkadísi. Snerra eignaðist síðar fyrstu verðlauna merina Ösp frá Árnagerði.
Hrossarækt Guðjóns Steinarssonar byrjaði þó ekki fyrir alvöru fyrr en árið 1982 en þá keypti hann Skutlu frá Stykkishólmi sem gaf honum tvær fyrstu verðlauna hryssur, þær Nótt og Tign. Tveimur árum seinna eða árið 1984 keypti hann svo Heru frá Jaðri en hún hefur gefið honum 4 fyrstu verlauna hross og fimm hross með önnur verðlaun. Árið 1988 keypti hann svo loks Stör frá Unalæk en hún hefur gefið honum alls 5 fyrstu verðlauna merar og tvö önnur hross með önnur verðlaun. Þar með var kominn vísirinn af núverandi hrossarækt. Einnig á þessum tíma festu hann og faðir hans kaup á Prúð frá Kirkjubæ. Hún eignaðist eitt folald í þeirra eigu en það er fyrstu verðlauna hryssan Hugsýn frá Árnagerði. Prúð var seld út til Danmerkur stuttu eftir það. Í fyrstu var ræktunin kennd við Árnagerði sem er uppeldisstaður Guðjóns.
Það var svo ekki fyrr en Guðjón, Særún og börn þeirra fluttust að Tjaldhólum árið 2000 að Guðjón byrjaði að kenna hrossin sín við Tjaldhóla.
Það má segja að hrossaræktin sé ekki stór í sniðum miðað við mörg önnur bú, en hún hefur þó borið mikinn ávöxt hingað til en Eldjárn frá Tjaldhólum er m.a. hæst dæmdi klárhestur í heimi fyrir hæfileika. Á Tjaldhólum er leitast við að rækta geðgóð, hágeng, rúm og falleg hross sem eru á allra valdi.
Undafarinn 20 ár hafa fæðst 2-3 folöld á ári í eigu Guðjóns. Af þessum hrossum eru alls 13 í fyrstu verðlaun og fjöldinn allur með önnur verðlaun.