Forsíða
Nýlega bættist við nýr fjölskyldumeðlimur en það er hún Týra litla. Týra kemur frá Brekkukoti. Týra er mikill frekjudós og lætur hún Hring ekkert ráðskast með sig að óþörfu. Þau eru þó mestu mátar og leika sér stöðugt allan daginn.
Annars er það helst að frétta að verið er að reyna að koma upp almennilegri heimasíðu en vonandi verður það búið sem allra fyrst. 
Féð er komið í byggð og nú fer brátt að líða að því að bæði kindur og hestar verði tekinn aftur á hús.