Nú er búið að taka frekar langan tíma að reyna að koma síðunni í gang en þetta mjakast þó allt í áttina. Jólin og allt sem þeim fylgir er nú loks yfirstaðið og nýtt ár gengið í garð. Þá er loksins kominn regla á hið daglega líf og má vænta mikilla úrbóta í síðugerðinni. Mikið hefur verið að gera í hestunum og er búið að taka nokkur hross á hús jafnt taminn sem og ótaminn. Kindurnar hafa það ekki sem verst og er bara að vona að flest allt sem sett var á skili ávöxt sínum í vor. Hjúin Hringur og Týra sem sjá má hér á myndinni hafa það gott og er aðeins farið að kenna þeim, þá sérstaklega Hring hvernig fara á að í smalamennskunni og lofar hann mjög góðu.
|