Forsíða


Í dag var ákveðið að kíkja við á Efri - Rauðalæk og taka smá úttekt á hryssunum Dalvör frá Hrappsstöðum og Hreyfingu frá Tjaldhólum. Þar eru þær í tamningu hjá Sigursteini Sumarliðasyni. Þær litu mjög vel út en Dalvör sem sjá má á myndinni hér til hliðar lofar mjög góðu en hún er einungis tveggja mánaða taminn.

Hreyfing átti folald í sumar og var hún tekin inn um jólin og er núna búin að vera í einn mánuð í frumtamningu hjá Sigursteini. Hún lofar einnig mjög góðu.