Seinustu dagar hafa verið annasamir enda hefur sauðburður verið í hámarki. Sauðburðurinn hefur gengið framar björtustu vonum og hafa mörg falleg lömb bæst í hópinn. Það er því nokkuð víst að það verður erfitt að velja ásetningsgimbrar í haust. Þá eru allar ær bornar nema tvær. Hestarnir hafa verið í smá fríi þessa daganna og hafa þeir notið blíðurnar úti við.
Fríið orsakast fyrst og fremst vegna hestapestarinnar sem hefur verið að ganga um allt land, en við urðum aðeins vör við hana. En nú verður tekið aftur inn og byrjað að ríða út aftur. Eldgosið heldur uppteknum hætti og virðist ekkert lát vera á því. Strókurinn er misjafn eftir dögum en hann virðist þó ekkert fara minnkandi. ![]() Úti í sumarblíðunni |
Hafa Samband
- Tjaldhólar
- Sími 00354-4878600
- Sími 00354-6161440
- tjaldholar@simnet.is
- tjaldholar@gmail.com

