Forsíða Sauðfjárrækt

     

Við á Tjaldhólum eigum nokkrar kindur. Það er þó okkur aðallega til gamans. Við leggjum mikið upp úr því að hafa þær sem flestar mislitar en engu að síður vel gerðar og miklar afurðarær. Féð er á veturna flest allt á Tjaldhólum en á sumrin gengur féð á Fljótshlíðarafrétt. Bústofninn hefur farið stækkandi með hverju árinu en þó ekki svo mikið að ekki sé viðráðanlegt.